Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Takið þér rjóma í kaffið fröken?

Gónhóll ajElskulega fólk,
 
Við minnum á að Gónhóllinn okkar er að opna um helgina með breyttan opnunartíma. Nú verður opið frá kl. 11-18 allar og helgar í maí og síðan ætlum við að gera tilraun og hafa opið ALLA daga í sumar, frá kl. 11-18.
 
Það eru margar nýjungar hjá okkur og mikið framundan í sumar enda er Eyrarbakki staður á uppleið. Við verðum með vorfiðringstilboð á gistingu í maí, krambúðin er full af nýjum vörum og við viljum  sérstaklega vekja athygli ykkar á því að við erum komin með Fair Trade vörur og mikið af íslenskri framleiðslu. Þar má nefna kruðerí og kökur, sápur, kerti, krem og olíur...bara svona til að nefna eitthvað en úrvalið er mikið og eykst stöðugt!  Við byrjum með kryddjurtir frá Engi , kirsuberjatómata, chili og fleira, síðan koma sumarblómin og svo eykst úrvalið eftir því sem jörðin gefur. Um helgina erum við með fyrirtaksstofnútsæði , fræ og mold fyrir ykkur með grænu fingurna.
 
Kaffihúsið ilmar af kræsingum og þar er Jón Ingi vorfuglinn okkar með sína 3ju vorsýningu á Gónhól og við vekjum sérstaka athygli á einstaklega fallegum vatnslitamyndum af Eyrarbakka. Oft hefur nú Jón verið góður og hann verður bara betri með hverju árinu.
 
Markaðstorgið er fjölbreytt að vanda, þar verða lífræn barnaföt, prjónavörur, steinkarlar, hnífabrýni, flugnaspaðar, glerlist, búslóðir og föt, notuð og ný.
 
Það er því tilvalið að skella sér á rúntinn um helgina og koma við hjá okkur á Eyrarbakka.
 
Við hlökkum til að sjá ykkur öll og munið að við höfum síma 842 2550

Fair Trade vörur á gömlu verði í krambúðinni á Gónhól!

Við styrkjum sanngjörn viðskipti og viljum minna ykkur á að Fair Trade vörur fást hjá okkur.

Opið alltaf ef einhver er heima sem er oftast nær nú þegar sumarið syngur.

Sjáumst á Gónhól.


Rómantísk gisting fyrir lekkerar dömur og hreinlynda menn á stútungsaldri.

Grís Horror25% afsláttur á gistingu fyrir ástfangin pör á giftingaraldri. Njótið lífsins í nafla alheimsins á Eyrarbakka þar sem brimið syngur ykkur í svefn.


Við opnum 1. maí með vor í hjarta og bjóðum ykkur velkomin!

Gónhóll ajVið opnum 1. maí og það verður opið alla helgina frá kl. 11-18. Jón Ingi opnar málverkasýningu í kaffihúsinu, krambúðin er opin og markaðstorgið iðar af lífi og fjöri. Ef þú kemur til okkar og leigir íbúð færðu frían sölubás á markaðstorginu og getur skemmt þér með okkur bæði laugardag og sunnudag!

Annars er verð á sölubás 4000 krónur á stakan dag en 6000 fyrir helgina.
Uppl. og pantanir í síma 842 2550

 


Starfsmannaferðir, afmæli, brúðkaup, ættarmót...gæsir og steggir!

Við erum með frábærar ferðir fyrir starfsmannafélög og hópa sem vilja koma á Eyrarbakka í naflaferðir....sendið okkur póst og við sérsníðum ferðir fyrir hópa...gönguferðir, hamingjuhopp, súpur og brauð...alls konar spádómar lesið í lófa, spil, bolla og rauðvín. Skemmtilegt og uppbyggjandi að koma í nafla alheimsins. Pantanir og uppl. hjá Önnu í síma 842 2550

Uppbygging ferðaþjónustu í gamla ungmennafélagsandanum!

Grís Horror

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands fékk Gónhól á Eyrarbakka  lánaðan undir leiksýningar sínar á söngleiknum Grís Horror sem gerist í rússneskum fjöldamorðingjaskóla. Ungmennin hafa sýnt 8 sýningar undir fullu húsi og hlotið mikið lof fyrir. Öll leikmyndin og búningar eru hönnuð af þeim sjálfum og Garún leikstjóri gefur þeim hæstu einkunn fyrir dugnað og vönduð vinnubrögð

Þar sem þau sáu líkan af Þorpinu, verslunar- og sögusetri sem áætlað er að byggja inni í saltfiskhúsinu, ákváðu þau endurgreiða  lánið á aðstöðunni  og sýna eina styrktarsýningu fimmtudagskvöldið 15.apríl nk. Það verður sannkallað rússneskt þema þetta kvöld, boðið er uppá rússneska kartöflusúpu og heimabakað brauð gegn vægu verði  fram að sýningunni sem hefst kl. 22.00.

Hluti leikmyndarinnar verður notaður við uppbyggingu verslunarþorpsins og allur ágóði af þessu rússneska menningarkvöldi verður notaður til að hefjast þegar handa við byggingu næsta húss en fyrir jólin reis fyrsta húsið og var skreytt með piparkökum af skólabörnum í Árborg.

Allir eru velkomnir á þessa sýningu sem er allra síðasta sýning Nemendafélagsins. Miðinn kostar 2000 krónur.

Pantanir í súpu og sýningu, hvort heldur sem er eða hvort tveggja er í síma 894 2522.


Höfundur

Stafnhús ehf
Stafnhús ehf
Gónhóll er menningarmiðstöð á Eyrarbakka með það markmið að kynna þetta yndislega þorp fyrir bloggurum og öðrum Íslendingum sem hafa áhuga á sögu og menningu.

Nýjustu myndir

  • gonholl05
  • Vor 2010 011
  • emilog lina
  • Gónhóll aj
  • Grís Horror

Tónlist

Tónlist

Falleg, mjúk og góð tónlist


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband