Við opnum 1. maí með vor í hjarta og bjóðum ykkur velkomin!

Gónhóll ajVið opnum 1. maí og það verður opið alla helgina frá kl. 11-18. Jón Ingi opnar málverkasýningu í kaffihúsinu, krambúðin er opin og markaðstorgið iðar af lífi og fjöri. Ef þú kemur til okkar og leigir íbúð færðu frían sölubás á markaðstorginu og getur skemmt þér með okkur bæði laugardag og sunnudag!

Annars er verð á sölubás 4000 krónur á stakan dag en 6000 fyrir helgina.
Uppl. og pantanir í síma 842 2550

 


Starfsmannaferðir, afmæli, brúðkaup, ættarmót...gæsir og steggir!

Við erum með frábærar ferðir fyrir starfsmannafélög og hópa sem vilja koma á Eyrarbakka í naflaferðir....sendið okkur póst og við sérsníðum ferðir fyrir hópa...gönguferðir, hamingjuhopp, súpur og brauð...alls konar spádómar lesið í lófa, spil, bolla og rauðvín. Skemmtilegt og uppbyggjandi að koma í nafla alheimsins. Pantanir og uppl. hjá Önnu í síma 842 2550

Uppbygging ferðaþjónustu í gamla ungmennafélagsandanum!

Grís Horror

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands fékk Gónhól á Eyrarbakka  lánaðan undir leiksýningar sínar á söngleiknum Grís Horror sem gerist í rússneskum fjöldamorðingjaskóla. Ungmennin hafa sýnt 8 sýningar undir fullu húsi og hlotið mikið lof fyrir. Öll leikmyndin og búningar eru hönnuð af þeim sjálfum og Garún leikstjóri gefur þeim hæstu einkunn fyrir dugnað og vönduð vinnubrögð

Þar sem þau sáu líkan af Þorpinu, verslunar- og sögusetri sem áætlað er að byggja inni í saltfiskhúsinu, ákváðu þau endurgreiða  lánið á aðstöðunni  og sýna eina styrktarsýningu fimmtudagskvöldið 15.apríl nk. Það verður sannkallað rússneskt þema þetta kvöld, boðið er uppá rússneska kartöflusúpu og heimabakað brauð gegn vægu verði  fram að sýningunni sem hefst kl. 22.00.

Hluti leikmyndarinnar verður notaður við uppbyggingu verslunarþorpsins og allur ágóði af þessu rússneska menningarkvöldi verður notaður til að hefjast þegar handa við byggingu næsta húss en fyrir jólin reis fyrsta húsið og var skreytt með piparkökum af skólabörnum í Árborg.

Allir eru velkomnir á þessa sýningu sem er allra síðasta sýning Nemendafélagsins. Miðinn kostar 2000 krónur.

Pantanir í súpu og sýningu, hvort heldur sem er eða hvort tveggja er í síma 894 2522.


Vantar þig peninga?

Hvernig væri að leigja Gónhól, markaðstorg og kaffihús með öllu og halda markað! Félagasamtök og vinnustaðir geta virkjað alla í að taka til hjá sér og selja afraksturinn á líflegum helgarmarkaði á Gónhól!  Svo má líka halda bingó eða bara fara í ratleik ...nú eða spila Morðgátuna yfir litlu rauðvínsglasi! Við erum hér fyrir ykkur og við leysum flest mál...nema kannski e-ð pólitískt eins og icesave eða einhverja svoleiðis vitleysu....Gónhóll 13.des.2009 020

 

 

 

 

Gistingin okkar er ómótstæðileg! Sértilboð á notalegum íbúðum við sjóinn sem rúma allt að 6 manns. Væri ekki sniðugt að taka sig til og bjóða elskunni sinni í dekur og dúllerí á Eyrarbakka? Ekkert fer betur í lekkerar konur en e-ð óvænt og skemmtilegt sem hennar heittelskaði skipuleggur....


Takk fyrir yndislega aðventu kæru vinir

nú förum við í jólafrí og óskum ykkur öllum gleðilegra jóla, farsældar á komandi ári og þökkum allar góðar heimsóknir og stuðning á árinu sem er að líða.Gónhóll 13.des.2009 007

Jólamarkaður opinn laugardag og sunnudag frá kl. 13-17

Gónhóll 28. 29.nóv 2009 105Jólamarkaður á Gónhól um helgina, alls konar fallegt handverk og jólagjafir

Gónhóll 28. 29.nóv 2009 071Piparkökuhúsið óskar eftir fleiri börnum til að skreyta sig, Sigríður  Soffía Gunnarsdóttir ljósmyndari býður jólamyndatökuna í ár. Piparkökukrakkabúningar á staðnum.


Danshópur kátra krakka úr Lifandi Húsi sýnir á laugardag kl. 14.30.
Tónleikar Gullu Ólafs og Ásgeirs Ásgeirssonar sunnudag kl. 15 og saman
munu þau árita nýja diskinn sinn, Skammdegisóð sem seldur er á
tilboðsverði þennan dag.
Kaffihús, krambúð og gisting.
www.gonholl.is

Hlökkum til að sjá ykkur á Gónhó Eyrarbakka síminn er 842 2550


Jólamarkaður opinn frá kl. 13-17 laugardag og sunnudag

Gónhóll 28. 29.nóv 2009 098Jólamarkaður á Gónhól um helgina,

Gónhóll 28. 29.nóv 2009 071
Piparkökuhúsið óskar eftir fleiri börnum til að skreyta sig, Sigríður Soffía Gunnarsdóttir ljósmyndari býður  jólamyndatökuna í ár.
Piparkökukrakkabúningar á staðnum.


Danshópur kátra krakka úr Lifandi Húsi sýnir á laugardag kl. 14.30.
Tónleikar Gullu Ólafs og Ásgeirs Ásgeirssonar sunnudag kl. 15 og saman
munu þau árita nýja diskinn sinn, Skammdegisóð sem seldur er á
tilboðsverði þennan dag.
Kaffihús, krambúð og gisting.
www.gonholl.is


Jólamarkaður á Gónhól á aðventu jóla 2009

Við erum að baka stærsta piparkökuhús á Íslandi , það eru Katla og HP flatkökur sem styrkja okkur duglega og við þökkum þeim innilega fyrir það....við tökum á móti skólahópum og einstaklingum, allir hjálpast að við að skreyta piparkökuhúsið okkar en spurt er...hvenær eigum við að borða þetta allt?

Þetta er jafnframt fyrsta húsið í Þorpinu okkar...íslenska verslunaþorpinu sem við ætlum að reisa inni í gamla frystihúsinu á Eyrarbakka, strax í sumar getið þið komið og farið 100 ár aftur í tímann, klætt ykkur í búning og leikið hvaða hlutverk sem ykkur þóknast...

Skráning í Piparkökuhandverk og hönnun 2009 stendur yfir. Allt sem hægt er að baka úr piparkökudeigi kemur til greina og það er keppt í barna og fullorðinsflokkum. Allir eru vekomnir og það eru vegleg verðlaun í boði sem verða kynnt þann 13. desember en þá er aukajólamarkaðsdagur hjá okkur.

Jólamarkaðir okkar eru opnir frá kl. 13-17 , kúfullir af skemmtilegum handgerðurm jólagjöfum sem slá í gegn....28.-29.nóvember, 5. og 6. desember og síðan 13. desember.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest ef ekki bar öll!

Bakkaknús frá Gónhól!


HUX Lista og tungumálamiðstöð í Gónhól

Ný námskeið hefjast 23. febrúar nk. 
  1. Forskólanámskeið fyrir bráðger börn 4-5 ára.

Tími: þriðjudagar og fimmtudagar kl. 13.00-14.00

Verð 12.900  10 skipti

 
  1. Tungumálin í brennidepli I,  byrjunarnámskeið fyrir 6-12 ára börn.

Tími: þriðjudagar og fimmtudagar  kl. 15.00-16.30

Verð 12.900  10 skipti

 

     3.   Tungumálin í brennidepli II,  framhaldsnámskeið fyrir 6-12 ára börn.

Tími: mánudagar og miðvikudagar  kl. 15.00-16.30

Verð 12.900  10 skipti

   4.    Ég er besti vinur minn, sjálfsstyrking og listsköpun fyrir  11- 16 ára.

          Hóparnir eru kynjaskiptir og hámarksfjöldi eru 8 einstaklingar.

Lögð er áhersla á frjálsa tjáningu í gegnum myndlist, tónlist og  leiklist. Einstaklingsmiðað námskeið þar      sem tekið er mið af þroska og hæfni hvers og eins. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sjálfa sig í jákvæðu ljósi og beini sjónum að sínum sterku hliðum og ákveði að hafa áhrif á aðstæður sínar.

 Tími: miðvikudagar  kl. 17.00- 18.30

Verð 7.900 á mánuði. 10 skipti

 

5.     Tungumálið er leikur einn. Samverunámskeið fyrir börn og foreldra sem vilja læra       tungumál saman á skemmtilegan hátt. Amma og afi líka velkomin.

Tilvalin fermingargjöf!

Tími: þriðjudaga kl. 17.00-18.30 ENSKA

Tími: fimmtudaga kl. 17.00-.18.30 SPÆNSKA

  

Námskeið framundan sem verða auglýst síðar.

  

Ertu að flytja til útlanda?  Leiðbeiningar og aðstoð við búferlaflutninga auk kennslu í grunnatriðum tungumálsins fyrir foreldra og börn. Danska, enska, spænska, franska og þýska.

 

Markaðstorg, atvinnusköpun fyrir atvinnulausa. Námskeið í handverki alls konar, sultugerð, súrsun, brauðbakstri og fleiru sem selja má á Gónhólsmarkaðnum og víðar.

 

Alþjóðleg matreiðslunámskeið

Vínkynningar

Hekl og prjónanámskeið

Listin að segja sögu

Listin að yrkja bögu

Ljósmyndanámskeið

Endurvinnslan byrjar heima

Jóga fyrir 50 ára og eldri

Þjóðdansar

Gestalistamenn, innlendir og erlendir munu einnig halda námskeið fyrir börn og fullorðna.

    

Jólamarkaður um helgina

Alls konar skemmtilegar jólagjafir, leirlist, myndlist og gler. Heimagerðar sultur, smákökur  og sunnlenskt grænmeti, glænýtt rauðkál og gulrætur frá Ragnhildi á Flúðum. Uppskriftir að heimagerðu rauðkáli fylgja. Brjóstsykurgerð á staðnum. Handgerð kerti og reykelsi, dagatöl, bækur, snyrtivörur, heilsuvörur, handmálaðar jólakúlur.
 
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir kynnir nýja diskinn sinn og syngur með jólasveininum og börnunum á sunnudag.
 
Ilmandi jólastemming í kaffihúsinu.
 
Tilboð á gistingu.  Nýjar og huggulegar íbúðir við ströndina aðeins 5000 krónur nóttin.
 
Opið fra kl. 13-18 laugardag og sunnudag.

Verið öll hjartanlega velkomin


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Stafnhús ehf
Stafnhús ehf
Gónhóll er menningarmiðstöð á Eyrarbakka með það markmið að kynna þetta yndislega þorp fyrir bloggurum og öðrum Íslendingum sem hafa áhuga á sögu og menningu.

Nýjustu myndir

  • gonholl05
  • Vor 2010 011
  • emilog lina
  • Gónhóll aj
  • Grís Horror

Tónlist

Tónlist

Falleg, mjúk og góð tónlist


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 11819

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband